Juventus mætir Torino í skemmtilegum nágrannaslag í 8-liða úrslitum ítalska bikarsins.
Atalanta kom á óvart í gærkvöldi og sló Napoli úr leik á San Paolo leikvanginum, með tveimur mörkum gegn einu.
Atalanta kom á óvart í gærkvöldi og sló Napoli úr leik á San Paolo leikvanginum, með tveimur mörkum gegn einu.
Sigurvegari kvöldsins mætir Atalanta í undanúrslitum bikarsins. Milan mætir Lazio í hinum undanúrslitaleiknum.
Juve er búið að eiga gott tímabil. Félagið komst upp úr riðli í Meistaradeild og er í öðru sæti ítölsku deildarinnar, einu stigi eftir Napoli.
Torino hefur ekki gengið jafn vel og er um miðja deild, fimm stigum frá sæti í undankeppni Evrópudeildarinnar.
Leikur kvöldsins:
19:45 Juventus - Torino
Athugasemdir