Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 03. mars 2020 21:37
Ívan Guðjón Baldursson
Enski bikarinn: Chelsea sendi Liverpool heim
Mynd: Getty Images
Chelsea 2 - 0 Liverpool
1-0 Willian ('13)
2-0 Ross Barkley ('64)

Chelsea er komið í 8-liða úrslit enska bikarsins eftir góðan 2-0 sigur á lærisveinum Jürgen Klopp frá Liverpool.

Heimamenn komust yfir snemma leiks þegar Adrian réði ekki við bylmingsskot frá Willian og varði knöttinn í netið.

Bæði lið fengu góð færi en heimamenn virkuðu hættulegri í sínum aðgerðum og tvöfaldaði Ross Barkley forystuna eftir skyndisókn í síðari hálfleik.

Chelsea komst nálægt því að bæta þriðja markinu við en Adrian sagði nei og niðurstaðan sanngjarn 2-0 sigur heimamanna.

Þetta er annað tap Liverpool í röð og þriðja tap liðsins í síðustu fjórum leikjum.

Það skyggði á sigur Chelsea að Mateo Kovacic og Willian þurftu að fara meiddir af velli.
Athugasemdir
banner
banner