Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 03. mars 2020 16:30
Magnús Már Einarsson
Mourinho reiknar ekki með miklum breytingum í sumar
Mynd: Getty Images
Jose Mourinho, stjóri Tottenham, segir að ekki verði stórar breytingar á leikmannahópi félagsins í sumar.

Tottenham er í augnablikinu í sjöunda sæti í ensku úrvalsdeildinni en liðið er án Harry Kane Heung-Min Son sem eru á meiðslalistanum. Mourinho ætlar að reyna að styrkja hópinn í sumar en segist þó ekki reikna með miklum breytingum.

„Það verða ekki gríðarlegar breytingar," sagði Mourinho á fréttamannafundi í dag.

„Í fyrsta lagi er þetta ekki það sem við þurfum, í öðru lagi er það ekki venjan hjá félaginu og þriðja ástæðan er sú að markaðurinn er eins og hann er."

„Ár eftir ár er markaðurinn erfiðari svo ég er ekki að hugsa um gjörbylta hópnum í augnablikinu. En auðvitað þurfum við að gera hópinn betri."

Athugasemdir
banner
banner
banner