Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   þri 03. mars 2020 11:00
Magnús Már Einarsson
Tammy Abraham ekki með gegn Liverpool - Klár í næstu viku?
Tammy Abraham.
Tammy Abraham.
Mynd: Getty Images
Frank Lampard, stjóri Chelsea, segir óljóst hvenær Tammy Abraham og Christian Pulisic verða klárir í slaginn á nýjan leik.

Abraham hefur verið að glíma við meiðsli á ökkla en hann var ekki með í 2-2 jafnteflinu gegn Bournemouth um helgina.

Pulisic hefur einnig verið frá keppni undanfarnar vikur.

„Ég vnona að þeir verði klárir eftir viku eða tvær en það er ekki hægt að segja til um það," sagði Lampard.

Abraham og Pulisic verða ekki með gegn Liverpool í enska bikarnum í kvöld en sá fyrrnefndi fór í vikunni til Barcelona þar sem hann hitti sérfræðing vegna meiðsla sinna.
Athugasemdir
banner