Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
   fim 03. júní 2021 22:47
Hafþór Bjarki Guðmundsson
Laugi Baldurs: Við erum þokkalega sáttir
Lengjudeildin
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Mér líður ágætlega. Við lendum 2-0 undir í fyrri hálfleik og komum til baka og gerum tvö góð mörk. Auðvitað hefðum við viljað ná í þriðja með vindinn með okkur og orðnir einum fleiri en við erum þokkalega sáttir með að hafa náð í stig," sagði Guðlaugur Baldursson þjálfari Þróttar Reykjavíkur eftir 2-2 jafntefli við Gróttu á útivelli í kvöld.

Þróttur komu til baka eftir að hafa verið tveim mörkum undir í hálfleik. Þeir sóttu stig með hjálp Samuel Ford sem skoraði bæði mörk þeirra.

Lestu um leikinn: Grótta 2 -  2 Þróttur R.

Laugi gerði fjórar breytingar á liði sínu í leiknum og áttu allir leikmennirnir mjög flotta innkomu. Laugi segist vera mjög ánægður með þeirra framlag.

„Ég er mjög ánægður með það að menn komi inn í leikina til þess að breyta þeim og til þess að gera eitthvað ekki bara til þess að koma inná."

Þróttur fær víti sem Gróttumenn voru ekki sáttir með ásamt rauðu spjaldi á Halldór Kristján Baldursson en Guðlaugur hafði ekki séð brotið.

„Er það ekki alltaf þannig að maður er sáttur ef maður fær vítið en ósáttur ef maður fær það ekki. En ég veit það ekki, ég sá það ekki. Mér fannst við eiga að fá víti á öðrum stað í leiknum en það bara skiptir ekki máli þetta er bara svona."

Viðtalið í heild sinni má sjá í sjónvarpinu hér að ofan
Athugasemdir
banner