Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 03. september 2021 23:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
4. deild: jafnt í báðum leikjunum
Aðalgeir Friðriksson hér til hægri skoraði dramatískt mark fyrir Hamar.
Aðalgeir Friðriksson hér til hægri skoraði dramatískt mark fyrir Hamar.
Mynd: Hamar
Úrslitakeppni 4. deildar hélt áfram í kvöld. Það er komið að undan úrslitum.

Hamar fékk Kormák/Hvöt í heimsókn en gestirnir komust yfir með marki frá Hilmari Þór Kárasyni á 21. mínútu. Það stefndi allt í sigur en á 94. mínútu skoraði Aðalgeir Friðriksson og jafnaði leikinn fyrir Hamar. 1-1 lokatölur.

Það var álíka dramatíkin í leik KH og Vængir Júpíters. KH komst yfir með marki Ervist Pali úr vítaspyrnu í fyrri hálfleik. Það var síðan Aron Fannar Hreinsson sem jafnaði metin fyrir Vængi Júpíters á 89. mínútu.

Síðari leikirnir fara fram á þriðjudaginn 7. september.

Hamar 1-1 Kormákur/Hvöt
0-1 Hilmar Þór Kárason ('21)
1-1 Aðalgeir Friðriksson (90+4)

KH 1-1 Vængir Júpíters
1-0 Ervist Pali, víti
1-1 Aron Fannar Hreinsson ('89)
Athugasemdir
banner
banner
banner