Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 03. september 2021 16:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
„Ronaldo sagði mér frá því fyrir mánuði síðan"
Mynd: EPA
MMA stjarnan Khabib Nurmagomedov segir að það hafi ekki komið sér á óvart þegar Cristiano Ronaldo var tilkynntur sem leikmaður Manchester United.

Ronaldo gekk í raðir United fyrir viku síðan eftir þrjú ár hjá Juventus. Það voru tólf ár frá því hann yfirgaf Manchester og gekk í raðir Real Madrid.

„Viðræðurnar komu mér ekki á óvart, Ronaldo sagði mér frá því fyrir mánuði síðan," sagði Khabib við rússneska miðilinn Rsport.

„Ég bjóst við að samkomulag næðist fyrr en síðar. Ég er á því að Manchester United henti Ronaldo betur en Juve," sagði Khabib.

Khabib barðist í UFC og var þar ósigraður þegar hann hætti í fyrra. Hann hafði unnið 29 bardaga og ekki tapað einum einasta.


Athugasemdir
banner
banner
banner