Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 03. október 2020 13:02
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Byrjunarlið Everton og Brighton: Gylfi byrjar
Gylfi byrjar.
Gylfi byrjar.
Mynd: Getty Images
Gylfi Þór Sigurðsson er í byrjunarliði Everton í fyrsta sinn í ensku úrvalsdeildinni á þessari leiktíð.

Everton tekur á móti Brighton í ensku úrvalsdeildinni klukkan 14:00.

Allan og Andre Gomes eru að glíma við meiðsli og þess vegna kemur Gylfi inn á miðsvæðið. Hann byrjar ásamt Kólumbíumanninum James Rodriguez, sem hefur komið af krafti inn í ensku úrvalsdeildina.

Everton er með fullt hús stiga eftir þrjá leiki og það verður fróðlegt að sjá hvort lærisveinar Graham Potter í Brighton nái að stöðva sigurgöngu Everton. Brighton hefur spilað mjög vel í upphafi móts og var liðið mjög óheppið að tapa gegn Man Utd um síðustu helgi.

Hér að neðan má sjá bæði byrjunarlið.

Byrjunarlið Everton: Pickford, Digne, Keane, Mina, Coleman, Davies, Sigurdsson, Doucoure, Richarlison, Calvert-Lewin, Rodriguez.
(Varamenn: Lossl, Delph, Walcott, Iwobi, Nkounkou, Bernard, Gordon)

Byrjunarlið Brighton: Ryan, Lamptey, White, Webster, Dunk, Bissouma, March, Trossard, Alzate, Connolly, Maupay.
(Varamenn: Steele, Mac Allister, Gross, Lallana, Bernardo, Burn, Veltman)

Leikir dagsins:
11:30 Chelsea - Crystal Palace (Síminn)
14:00 Everton - Brighton (Síminn)
16:30 Leeds - Man City (Síminn)
19:00 Newcastle - Burnley (Síminn)
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 34 24 5 5 82 26 +56 77
2 Man City 33 23 7 3 80 32 +48 76
3 Liverpool 34 22 8 4 75 34 +41 74
4 Aston Villa 34 20 6 8 71 50 +21 66
5 Tottenham 32 18 6 8 65 49 +16 60
6 Man Utd 33 16 5 12 51 50 +1 53
7 Newcastle 33 15 5 13 69 54 +15 50
8 West Ham 34 13 9 12 54 63 -9 48
9 Chelsea 32 13 8 11 61 57 +4 47
10 Bournemouth 34 12 9 13 49 60 -11 45
11 Brighton 33 11 11 11 52 54 -2 44
12 Wolves 34 12 7 15 46 54 -8 43
13 Fulham 34 12 6 16 50 54 -4 42
14 Crystal Palace 34 10 9 15 44 56 -12 39
15 Brentford 34 9 8 17 52 59 -7 35
16 Everton 34 11 8 15 36 48 -12 33
17 Nott. Forest 34 7 9 18 42 60 -18 26
18 Luton 34 6 7 21 47 75 -28 25
19 Burnley 34 5 8 21 37 69 -32 23
20 Sheffield Utd 34 3 7 24 33 92 -59 16
Athugasemdir
banner
banner