Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 03. október 2021 07:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Að sleppa bólusetningu er eins og að keyra fullur
Mynd: Getty Images
Jurgen Klopp stjóri Liverpool hefur fordæmt þá leikmenn sem neita að fara í bólusetningu gegn Covid-19.

Móðir Klopp lést árið 2019 af völdum Covid-19 en hann segir að þeir leikmenn sem kjósa að sleppa bólusetningu hljóta að finnast allt í lagi að keyra eftir að hafa fengið sér áfengi.

„Við höfum örugglega öll verið í þeim aðstæðum að við höfum fengið okkur einn eða tvo bjóra og haldið að við getum keyrt en lögin segja að við meigum það ekki svo við gerum það ekki," sagði Klopp.

„Lögin eru ekki til að verja mig, þau eru til að verja alla hina. Bólusetningin er eins. Ég skil ekki af hverju hún er valfrjáls, fyrst svo er þá ætti að keyra undir áhrifum að vera það líka," sagði Klopp að lokum.
Athugasemdir
banner
banner
banner