Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   mán 04. janúar 2021 15:41
Magnús Már Einarsson
Félagar Cavani í landsliðinu biðja um afléttingu á banninu
Mynd: Getty Images
Landsliðsmenn Úrúgvæ hafa margir birt yfirlýsingu á Twitter þar sem þeir kalla eftir því að þriggja leikja banni Edinson Cavani verði aflétt.

Cavani var dæmdur í þriggja leikja bann fyrir að nota orðið „negrito" í kveðju á Instagram eftir skilaboð sem hann fékk frá vini sínum eftir leik gegn Southampton í lok nóvember.

Cavani var dæmdur í bann fyrir kynþáttafordóma en hann sagðist ekki hafa notað orðið í þeim tilgangi heldur sé þetta orð notað á annan hátt í hans mennignarheimi.

Diego Godin, Luis Suarez, Lucas Torreira og fleiri félagar Cavani úr landsliði Úrúgvæ hafa birt yfirlýsingu á Twitter í dag þar sem þeir kalla eftir að banninu sé aflétt.

Cavani tók út fyrsta leik sinn í banninu gegn Aston Villa á föstudaginn.



Athugasemdir
banner
banner
banner