Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 04. ágúst 2021 11:04
Elvar Geir Magnússon
Heimild: Guardian 
Man City að ganga frá kaupum á Grealish
Jack Grealish.
Jack Grealish.
Mynd: Getty Images
Manchester City er að ganga frá kaupum á Jack Grealish frá Aston Villa og mun hann að öllum líkindum ganga frá fimm ára samningi.

Viðræður eru sagðar á lokastigi og ef eitthvað óvænt gerist verður kaupverðið um 100 milljónir punda.

Villa reyndi að halda Grealish en nú stefnir í að City geri stærstu kaup sem gerð hafa verið milli tveggja enskra félaga.

City vill einnig fá Harry Kane frá Tottenham en Daniel Levy, stjórnarformaður Tottenham, vill ekki selja hann.

Villa tilkynnti í morgun um kaup á Leon Bailey frá Bayer Leverkusen fyrir um 30 milljónir punda.

Villa hefur einnig áhuga á Tammy Abraham sem Chelsea verðmetur á 40 milljónir punda.
Athugasemdir
banner
banner