Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 04. september 2022 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalía í dag - Roma heimsækir Udinese og Mikael í hóp hjá Spezia
Mikael Egill hefur komið inn af bekknum í þremur af fjórum deildarleikjum Spezia á tímabilinu en ekki fengið að spila í meira en tíu mínútur í einu.
Mikael Egill hefur komið inn af bekknum í þremur af fjórum deildarleikjum Spezia á tímabilinu en ekki fengið að spila í meira en tíu mínútur í einu.
Mynd: Getty Images

Það var sannkölluð fótboltasturlun á Ítalíu í gær þegar sex af bestu liðum Serie A mættust í innbyrðisviðureignum. Það eru fjórir leikir á dagskrá í dag og er AS Roma stærsta félagið sem mætir til leiks.


Rómverjar heimsækja Udinese í síðasta leik dagsins og geta endurheimt toppsæti deildarinnar með sigri. Roma er með tíu stig eftir fjórar umferðir, einu stigi eftir toppliðum Napoli og Milan sem unnu stórleikina í gær. Udinese er búið að vinna tvo leiki í röð og er með sjö stig.

Nýliðar Cremonese taka á móti Sassuolo í fyrsta leik dagsins sem hefst í hádeginu úti á Ítalíu eða klukkan 10:30 hér á Íslandi. Spezia mætir svo Bologna áður en Verona og Sampdoria eigast við.

Mikael Egill Ellertsson er í leikmannahópi Spezia fyrir leikinn gegn lærisveinum Sinisa Mihajlovic. Mikael og félagar eru með fjögur stig og Bologna er með tvö.

Leikir dagsins:
10:30 Cremonese - Sassuolo
13:00 Spezia - Bologna
16:00 Verona - Sampdoria
18:45 Udinese - Roma


Stöðutaflan Ítalía Serie A - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Inter 33 27 5 1 79 18 +61 86
2 Milan 33 21 6 6 64 39 +25 69
3 Juventus 33 18 10 5 47 26 +21 64
4 Bologna 33 17 11 5 48 26 +22 62
5 Roma 33 17 7 9 59 39 +20 58
6 Atalanta 32 16 6 10 59 37 +22 54
7 Lazio 33 16 4 13 42 35 +7 52
8 Napoli 33 13 10 10 50 41 +9 49
9 Fiorentina 32 13 8 11 45 36 +9 47
10 Torino 33 11 13 9 31 29 +2 46
11 Monza 33 11 10 12 35 43 -8 43
12 Genoa 33 9 12 12 35 40 -5 39
13 Lecce 33 8 11 14 30 48 -18 35
14 Cagliari 33 7 11 15 36 56 -20 32
15 Verona 33 7 10 16 31 44 -13 31
16 Empoli 33 8 7 18 26 48 -22 31
17 Udinese 33 4 16 13 31 50 -19 28
18 Frosinone 33 6 10 17 40 63 -23 28
19 Sassuolo 33 6 8 19 39 65 -26 26
20 Salernitana 33 2 9 22 26 70 -44 15
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner