Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   mið 05. febrúar 2020 23:08
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Ronaldo fékk Mercedes í 35 ára afmælisgjöf
Mynd: Getty Images
Cristiano Ronaldo fagnar í dag 35 ára afmæli sínu. Hann er og hefur verið einn fremsti knattspyrnumaður í heimi.

Í kvöld fékk hann veglega afmælisgjöf. Hann fékk Mercedes G-class eins og sjá má hér að neðan.

Bundið var utan um bifreiðina með rauðum borða og virkaði Ronaldo hissa þegar hann mætti út á götu þar sem bíllinn var.

Þar tóku á móti honum vinir og vandamenn og sungu afmælissöngin fyrir kappann.


Athugasemdir
banner