Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 05. nóvember 2020 10:00
Magnús Már Einarsson
Ramos skammaði Hakimi: Hættu að öskra eins og rotta
Sergio Ramos.
Sergio Ramos.
Mynd: Getty Images
Sergio Ramos, varnarmaður Real Madrid, lét Achraf Hakimi heyra það í 3-2 sigrinum á Inter í Meistaradeildinni í fyrrakvöld.

Hakimi lét sig falla í teignum og reyndi að fiska vítaspyrnu við litla hrifningu Ramos.

„Stattu upp hórusonur, stattu upp! Hættu að öskra eins og rotta," sagði Ramos á meðan hann reyndi að draga Hakimi á lappir.

Hakimi lék áður með Real Madrid með Ramos en hann fór til Inter í sumar.

Hér að neðan má sjá atvikið.

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner