Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 06. janúar 2023 19:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Butland vildi spila meira - „Gott skref fyrir hann"
Mynd: Crystal Palace

Patrick Vieira stjóri Crystal Palace er ánægður fyrir hönd Jack Butland að vera genginn til liðs við Manchester United.


Þessi 29 ára gamli markvörður gekk til liðs við United á láni út tímabilið en hann mun berjast um sæti í liðinu við David de Gea og Tom Heaton.

Hann var fenginn til liðsins eftir að Martin Dubravka var kallaður til baka af Newcastle á dögunum.

Vieira segir að hann hafi ekki geta gefið Butland þann spiltíma sem hann vildi.

„Við vissum að við erum með þrjá mjög góða markmenn og Butland var einn af þeim, stundum vill leikmaður fá meiri tíma inn á vellinum en þú getur gefið honum svo mér finnst þetta gott skref fyrir hann á endanum," sagði Viera.

„Á þeim tíma sem ég hef unnið með honum hefur hann sýnt mikla fagmennsku og ég óska honum alls hins besta."


Athugasemdir
banner
banner