Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
   lau 06. júlí 2019 16:54
Ívan Guðjón Baldursson
Helgi Sig: Set spurningarmerki við völlinn
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Helgi Sigurðsson þjálfari Fylkis viðurkenndi að sínir menn hafi ekki verið nógu góðir í dag eftir 2-0 tap gegn ÍA.

Fylkir er í um miðja deildina með 15 stig eftir 11 umferðir. Íslandsmeistarar Vals eru einu stigi fyrir ofan en Árbæingar eiga leik til góða.

„Við vorum alltof hægir í sóknaraðgerðum, slakar fyrirgjafir og lítil sem engin ákefð í þessu. Við áttum þetta bara skilið. Það var lítið tempó á boltanum, við vorum ekki að ná að skapa þau færi sem við höfum verið að gera í síðustu leikjum," sagði Helgi.

„Frábærar aðstæður hérna í dag en ég set spurningarmerki við völlinn sem var helvíti þurr í dag, hann var ekkert bleyttur. Það er eitthvað sem við erum óvanir, asnalegt að segja frá því. Við eigum bara að geta gert mikið betur heldur en við gerðum hér í dag. Skagamenn vildu þetta meira."

Helgi var spurður hvort Fylkir ætlaði að styrkja sig í sumarglugganum en svaraði því neitandi. Hann er sáttur með hópinn sem hann hefur undir höndunum.
Athugasemdir
banner
banner
banner