Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 07. janúar 2022 16:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Conte ætlar að hvíla Kane - Son meiddur
Mynd: EPA
Antonio Conte, stjóri Tottenham, verður án Heung-min Son þegar liðið mætir Morecambe í enska bikarnum á sunnudag. Son hefur verið öflugasti leikmaður liðsins að undanförnu en hann fann fyrir eymslum eftir leikinn gegn Chelsea í deildabikarnum í vikunni.

„Læknarnir skoðuðu hann og hann verður frá í einhvern tíma," sagði Conte á frétamannafundi í dag.

„Ég held að þessi leikur sé gott tækifæri til að gefa fleiri mönnum tækifæri. Keppnin er mikilvæg og við viljum fara áfram. Við viljum vinna leikinn."

Harry Kane verður hvíldur í leiknum á sunnudaginn og Dele Alli mun spila leikinn. „Það er tækifæri fyrir hann að spila vel og sýna að hann er klár í slaginn framundan," sagði Conte um Alli.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner