Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 07. janúar 2023 14:49
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Maddison bjartsýnn í æfingasalnum - „Gangi ykkur vel strákar"
Mynd: Getty Images

James Maddison hefur ekkert spilað síðan HM hófst vegna meiðsla. Hann var valinn í enska landsliðshópinn en gat ekkert tekið þátt á mótinu.


Brendan Rodgers stjóri Leicester sagði á annan í jólum að það yrði langt í að Maddison byrjaði að spila.

Það er engin dagsetning á það hvenær hann getur byrjað að spila en hann virðist sjálfur bjartsýnn á að það verði fljótlega.

„Legg mig allan fram til að koma til baka fljótlega í topp formi. Gangi ykkur vel í dag strákar, við styðjum ykkur frá Seagrave," skrifaði Maddison á Twitter og setti mynd af sér og James Justin á æfingasvæði félagsins.

Leicester vann Gillingham í enska bikarnum í dag þar sem Kelechi Iheanacho skoraði eina mark leiksins.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner