Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   sun 07. júní 2020 10:00
Ívan Guðjón Baldursson
Markahæstur í sögu Kína hraunaði yfir ríkisstjórnina
Mynd: Getty Images
Hao Haidong er markahæsti leikmaður í sögu kínverska landsliðsins með 41 mark í 107 leikjum. Hann lagði skóna á hilluna 2007 eftir tvö ár hjá Sheffield United.

Haidong er 50 ára gamall og býr í suðurhluta Spánar. Hann kom óvænt fram í YouTube kynningu milljarðamæringsins Guo Wengui sem býr í New York en er eftirlýstur af kínversku ríkisstjórninni fyrir það sem hann segir vera falskar ásakanir. Hann er meðal annars ásakaður um peningaþvætti, mútuþægni og fjársvik.

Myndbandið var rúmlega klukkutíma langt og sagði Haidong meðal annars að 'það ætti að banna Kommúnistaflokkinn frá mannkyninu'. Við hlið Haidong sat eiginkona hans, kínverski badminton meistarinn Ye Zhaoying.

Myndbandið skapaði mikinn usla í Kína þó almenningur eigi ekki að búa við aðgengi að YouTube. Í myndbandinu las Haidong upp stefnuyfirlýsingu Guo Wengui sem vill gjörbreyta stjórnarfarinu í Kína.

Kínverska ríkisstjórnin svaraði með því að eyða öllum gögnum frá afrekum Haidong með kínverska landsliðinu. Þá bannaði ríkið alla umræðu um Haidong í fjölmiðlum og var almenningur varaður við því að ræða um myndbandið á opinberum vettvangi.

Ekki leið á löngu þar til þessi skilaboð hurfu og augljóst að kínverska ríkisstjórnin hafi ákveðið að láta sem ekkert hafi gerst.

Eytt var öllum aðgöngum Haidong á kínverskum samfélagsmiðlum og er bannað að nefna hann á nafn á internetinu.

„Ég hef engan áhuga á að tjá mig um málið," sagði Geng Shuang, utanríkismálaráðherra Kína, á föstudaginn.
Athugasemdir
banner
banner
banner