Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 07. júlí 2018 17:29
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Rashford grét eftir leikinn - Fór svo og hughreysti Lindelöf
Mynd: Getty Images
Marcus Rashford kom inn á sem varamaður þegar England sigraði Svíþjóð í 8-liða úrslitunum á HM áðan. England er komið í undanúrslit í fyrsta sinn í 28 ár.

Í leikslok báru tilfinningarnar Rashford ofurliði.

Rashford er aðeins tvítugur og hann er að upplifa draum sinn með enska landsliðinu á HM.

Gareth Southgate og aðrir meðlimir þjálfaraliðsins hughreystu þennan efnilega leikmann Manchester United.

Eftir að Rashford hafði jafnað sig fór hann og hughreysti dapra leikmenn Svíþjóðar, þar á meðal liðsfélaga sinn, Victor Lindelöf.





Athugasemdir
banner
banner