Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   þri 07. nóvember 2017 22:36
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Koscielny og David Silva skiptust á stuttbuxum
Mynd: Getty Images
Laurent Koscielny, varnarmaður Arsenal, og David Silva, miðjumaður Manchester City, ákváðu að skiptast á stuttbuxum þegar Manchester City og Arsenal áttust við um síðustu helgi.

Eftir leikinn, sem endaði 3-1 fyrir City, ákváðu þeir félagar að skiptast á stuttbuxum, já stuttubuxum.

Venjan er að leikmenn skiptist á treyjum. Koscielny og Silva breyttu hins vegar út af vananum. Auk þess að skiptast á treyjum þá skiptust þeir líka á stuttbuxum.

Í myndbandinu hér að neðan er hægt að sjá þetta.

Eftir um 12 mínútur og 50 sekúndur fer myndavélin að þeim þar sem þeir sjást skiptast á stuttbuxum.


Athugasemdir
banner