Heimsmeistaramótið er nú komið í stutt frí en boltinn heldur áfram að rúlla hér heima.
Einn leikur fer fram í Inkasso deild kvenna þar sem Sindri fær Aftureldingu/Fram í heimsókn á Sindravelli.
Þá er einn leikur í bæði 2.deild karla og kvenna í dag. Hjá körlunum mætir Leiknir F. liði Aftureldingar fyrir austan. Þá spilar Tindastóll gegn Gróttu hjá konunum.
sunnudagur 8. júlí
2. deild karla
14:00 Leiknir F.-Afturelding (Fjarðabyggðarhöllin)
Inkasso deild kvenna
16:00 Sindri-Afturelding/Fram (Sindravellir)
2. deild kvenna
15:00 Tindastóll-Grótta (Sauðárkróksvöllur)
Athugasemdir