Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   mán 09. maí 2022 23:40
Ívan Guðjón Baldursson
Myndband: Fagnaði sigri Schalke valsandi um á typpinu
Mynd: Getty Images

Guðlaugur Victor Pálsson og félagar í Schalke tryggðu sér sæti í efstu deild þýska boltans um helgina með frábærum endurkomusigri gegn St. Pauli.


Schalke er stórt og sögufrægt félag með marga stuðningsmenn sem óðu inn á völlinn að leikslokum og fögnuðu dátt með sínum mönnum.

Hver fagnaði á sinn hátt og var einn reynsluboltinn kominn úr öllum fötunum í fagnaðarlátunum.

Aðrir stuðningsmenn Schalke virtust taka vel í þetta uppátæki hjá honum en klæddu sig þó ekki úr fötunum.

Sjón er sögu ríkari og má sjá myndband hér fyrir neðan.


Athugasemdir
banner
banner
banner