Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 09. júní 2022 23:07
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
3. deild: Hafa unnið þrjá leiki og tapað þremur
Úr leik hjá Vængjum.
Úr leik hjá Vængjum.
Mynd: Fótbolti.net - Hulda Margrét
Vængir Júpiters 2 - 0 KH
1-0 Gunnar Orri Guðmundsson ('11 )
2-0 Ayyoub Anes Anbari ('90 )

Vængir Júpiters fóru með sigur af hólmi gegn KH í eina leik kvöldsins í 3. deild karla.

Vængirnir komust yfir snemma er Gunnar Orri Guðmundsson skoraði á elleftu mínútu. Það mark skildi liðin að þegar flautað var til hálfleiks.

KH var inn í leiknum alveg þangað til í uppbótartímanum, en þá skoraði Ayyoub Anes Anbari og gerði út um leikinn.

Lokatölur 2-0 fyrir Vængi sem eru búnir að vinna þrjá leiki og tapa þremur í fyrstu sex umferðunum. KH fer ekki vel af stað og er aðeins með þrjú stig.
Athugasemdir
banner
banner
banner