Landsliðsmaðurinn Arnór Sigurðsson fór á kostum með CSKA Moskvu í æfingaleik gegn Rubin Kazan í dag.
Bæði lið leika í rússnesku úrvalsdeildinni.
Bæði lið leika í rússnesku úrvalsdeildinni.
Arnór skoraði fyrsta og eina mark fyrri hálfleiksins á 14. mínútu. Á 79. mínútu kom hann CSKA í 2-0 og í næstu sókn fulkomnaði hann þrennu sína.
Frábærlega gert hjá þessum tvítuga Skagamanni sem er á leið inn í sitt annað tímabil hjá CSKA, ef hann verður áfram hjá félaginu. Arnór hefur meðal annars verið orðaður við Napoli á síðustu vikum.
Hörður Björgvin Magnússon lék einnig með CSKA í leiknum í dag.
Hat-trick @arnorsigurdsson ⚽️⚽️⚽️🇮🇸👊 #TeamTotalFootball https://t.co/oheTNa2z9t
— Total Football (@totalfl) July 9, 2019
Athugasemdir