Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 10. janúar 2020 13:00
Magnús Már Einarsson
Trent og Klopp bestir í desember - Met í uppsiglingu?
Mynd: Getty Images
Trent Alexander-Arnold, hægri bakvörður Liverpool, hefur verið valinn leikmaður desember mánaðar í ensku úrvalsdeildinni.

Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, hefur verið valinn stjóri mánaðarins.

Liverpool vann alla fimm leiki sína í ensku úrvalsdeildinni í desember og náði að auka forskot sitt á toppnum.

Klopp hefur fjórum sinnum á þessu tímabili verið valinn stjóri mánaðarins en hann hefur þar með jafnað met sem Pep Guardiola, stjóri Manchester City, setti tímabilið 2017/2018.

Klopp gæti bætt metið ef hann nær að vinna ein verðlaun til viðbótar á þessu tímabili.

Magnað mark Son Heung-min með Tottenham gegn Burnley var valið mark mánaðarins.

Athugasemdir
banner
banner
banner