Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   lau 10. nóvember 2018 14:00
Ívan Guðjón Baldursson
Raiola: Pogba og Mourinho sáttir - Zlatan til Milan?
Mynd: Getty Images
Ofurumboðsmaðurinn Mino Raiola hefur tjáð sig um framtíð Zlatan Ibrahimovic og Paul Pogba, sem eru báðir skjólstæðingar hans.

Raiola segir að Zlatan hafi möguleika á að snúa aftur til AC Milan í ítalska boltanum og þá heldur hann því fram að samband Pogba og Jose Mourinho hjá Manchester United sé komið í lag.

„Paul og Jose Mourinho eru búnir að sættast og honum líður betur því hann er mikilvægur partur af Manchester United. Juventus mun samt alltaf eiga stað í hjarta hans," sagði Raiola um Pogba.

„Samband mitt við nýja eigendur Milan er frábært og er hurðin opin fyrir Zlatan ef hann vill snúa aftur í ítölsku deildina."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner