Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
   þri 11. september 2018 21:33
Egill Sigfússon
Kolbeinn: Búinn að bíða eftir þessu í tvö ár
Icelandair
Kolbeinn í baráttu við Axel Witsel í leiknum í kvöld.
Kolbeinn í baráttu við Axel Witsel í leiknum í kvöld.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Tilfinningin er frábær. Ég er búinn að bíða eftir þessu í tvö ár," sagði Kolbeinn Sigþórsson eftir 3-0 tap Íslands gegn Belgíu í kvöld.

Kolbeinn spilaði sinn fyrsta landsleik síðan á EM 2016 en hann kom inn á sem varamaður og spilaði 20 mínútur. Kolbeinn er kominn í gang aftur eftir erfið meiðsli.

„Það gefur mér mikið að koma og vera í kringum liðið og spila. Það var svekkjandi hvernig fór í dag en fyrir mig er frábært að vera kominn aftur."

„Ég hefði getað spilað fleiri mínútur en þetta er það sem þeir ákváðu og ég er mjög ánægður með að fá mínúturnar. Ég vissi ekki hvað ég gæti spilað mikið en þetta gefur mér innsýn í það hvað ég get spilað lengi."

Kolbeinn hefur verið úti í kuldanum hjá félagsliði sínu Nantes í Frakklandi og hann veit lítið um framhaldið þar.

„Staðan er óljós. Ég fer út á morgun og sé hvernig staðan verður. Það verður bara að koma í ljós, ég veit það ekki," sagði Kolbeinn.

Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir
banner
banner
banner