Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 12. júní 2022 21:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Hlusta ekki á tilboð sem eru minni en 50 milljónir punda
Ricarlison.
Ricarlison.
Mynd: EPA
Everton vill fá að minnsta kosti í kringum 50 milljónir punda fyrir Brasilíumanninn Richarlison ef félagið á að selja hann í sumar.

Það eru sögusagnir um það að Richarlison vilji komast frá Everton í félag þar sem hann getur spilað í Evrópukeppni.

Hann hefur verið sterklega orðaður við Tottenham og þá eru Paris Saint-Germain og Real Madrid einnig sögð áhugasöm um brasilíska landsliðsmanninn.

En hann mun ekki fara ódýrt og samkvæmt Daily Mail mun Everton ekki íhuga tilboð fyrir minna en 50 milljónir punda.

Richarlison á tvö ár eftir af samningi sínum við Everton og það er því ekki nauðsynlegt fyrir félagið að selja hann í sumar. Það er þó alls ekki ólíklegt að það gerist.
Athugasemdir
banner
banner