Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
   mið 12. september 2018 19:16
Rögnvaldur Már Helgason
Sara Björk: Er ekki sátt með þetta
Vill ekki tjá sig um hver ætti að taka við landsliðinu
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Nei, ég er eiginlega ekki sátt með þetta miðað við færin sem við fengum í leiknum. Við hefðum átt að skora mikið fleiri mörk og koma okkur í betri stöðu," sagði landsliðsfyrirliðinn og leikmaður Wolfsburg, Sara Björk Gunnarsdótttir, eftir sigur á Þór/KA á Þórsvelli í 32-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í kvöld.

Lestu um leikinn: Þór/KA 0 -  1 VfL Wolfsburg

„Það er mjög erfitt að spila gegn liði sem liggur svona djúpt og þær vörðust mjög vel, lokuðu á þau svæði sem við vildum komast í. Vonandi getum við opnað þær aðeins meira heima og nýtt færin okkur aðeins betur."

Aðspurð um þjálfaramál landsliðsins vildi Sara Björk lítið tjá sig, en KSÍ leitar nú að eftirmanni Freys Alexanderssonar.

„Nei, ég hef ekki mikla skoðun á því núna. Ég veit að KSÍ er að skoða þetta núna og mun eflaust tala aðeins við mig um það líka. Ég ætla ekki að vera nefna nein nöfn hér núna."
Athugasemdir
banner
banner