Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   mán 12. október 2020 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Tékkar velja varalandsliðshóp
Mynd: Getty Images
Tékkland hefur valið 32 manna varalandsliðshóp fyrir leik gegn Skotlandi á miðvikudag.

Þetta er gert ef það koma upp vandamál í tengslum við kórónuveiruna.

Tékkar tóku aðeins með sér 18 leikmenn í leik gegn Ísrael í Þjóðadeildinni í gær eftir að þrír leikmenn liðsins voru greindir með veiruna, og tveir aðrir gátu ekki farið.

Tékkneski hópurinn ferðast aftur til Prag í dag og mun við komuna fara í kórónuveirupróf.

Í nýja varalandsliðshópnum eru meðal annars leikmenn úr tékkensku úrvalsdeildinni.
Athugasemdir
banner
banner
banner