Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 12. nóvember 2021 11:11
Elvar Geir Magnússon
Meiðsli Mane ekki alvarleg
Mynd: EPA
Aliou Cisse, landsliðsþjálfari Senegal, segir að meiðslin sem Sadio Mane hlaut í gær séu ekki alvarleg.

Eftir innan við hálftíma leik, í 1-1 jafntefli gegn Tógó, þurfti Mane að fara af velli.

Cisse segir að ákveðið hafi verið að taka enga áhættu og þess vegna hafi Mane verið tekinn af velli.

„Við tókum hann af velli sem varúðarráðstöfun, þetta er ekkert alvarlegt," segir Cisse.

Stuðningsmenn Liverpool fagna þessum tíðindum en þeir óttuðust að missa Mane á meiðslalistann þar sem Roberto Firmino var fyrir.
Athugasemdir
banner
banner