Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 13. febrúar 2021 20:44
Victor Pálsson
Oyarzabal á ótrúlegum batavegi - Spilar líklega gegn Man Utd
Mynd: Getty Images
Fyrr í vikunni var greint frá því að Mikel Oyarzabal myndi ekki spila með liði Real Sociedad í leikjum gegn Manchester United í Evrópudeildinni.

Liðin eigast við í 32-liða úrslitum keppninnar en fyrri viðureignin fer fram á fimmtudaginn næsta.

Staða Oyarzabal hefur breyst mikið á síðustu dögum en það var talið í raun öruggt að hann myndi ekki spila þessa tvo mikilvægu leiki síns liðs.

Oyarzabal er að glíma við meiðsli aftan í læri en hann er óvænt í leikmannahópnum gegn Getafe í leik sem fer fram á morgun.

Vængmaðurinn hefur jafnað sig mjög fljótt af þessum meiðslum en búist er þó við að hann muni ekki byrja leik morgundagsins.

Um er að ræða mikilvægasta leikmann Sociedad sem meiddist um síðustu helgi í 4-1 sigri gegn Cadiz.
Athugasemdir
banner
banner
banner