Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 14. janúar 2023 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
England í dag - United og City mætast á Old Trafford
Mynd: EPA
Mynd: Getty Images

Manchester United tekur á móti Manchester City á Old Trafford í fyrsta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni.


Þar mætast liðin í afar eftirvæntum grannaslag og í fyrsta sinn eftir 6-3 sigur Man City á Etihad leikvanginum í október. City vann báðar viðureignir liðanna á síðustu leiktíð en United vann síðast innbyrðisviðureign í mars 2021 og þar áður í mars 2020, janúar 2020 og desember 2019.

Bæði lið eru á góðu skriði en þó sérstaklega United sem er búið að vinna fjóra úrvalsdeildarleiki í röð. 

City þarf sigur í titilbaráttunni þar sem liðið er fimm stigum á eftir Arsenal á meðan United getur blandað sér í toppbaráttuna með sigri í dag. Rauðu djöflarnir eru fjórum stigum eftir nágrönnum sínum sem stendur og aðeins níu stigum frá toppnum.

Liverpool heimsækir Brighton í dag og þurfa bæði sigur í Evrópubaráttunni, þar sem aðeins eitt stig skilur þau að í sjöunda og áttunda sæti.

Leicester City heimsækir þá Nottingham Forest á meðan Everton tekur á móti Southampton og Wolves mætir West Ham.

Brentford og Bournemouth eigast svo við í lokaleik dagsins.

Leikir dagsins:
12:30 Man Utd - Man City
15:00 Everton - Southampton
15:00 Brighton - Liverpool
15:00 Nott. Forest - Leicester
15:00 Wolves - West Ham
17:30 Brentford - Bournemouth


Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 34 24 5 5 82 26 +56 77
2 Man City 33 23 7 3 80 32 +48 76
3 Liverpool 34 22 8 4 75 34 +41 74
4 Aston Villa 34 20 6 8 71 50 +21 66
5 Tottenham 32 18 6 8 65 49 +16 60
6 Man Utd 33 16 5 12 51 50 +1 53
7 Newcastle 33 15 5 13 69 54 +15 50
8 West Ham 34 13 9 12 54 63 -9 48
9 Chelsea 32 13 8 11 61 57 +4 47
10 Bournemouth 34 12 9 13 49 60 -11 45
11 Brighton 33 11 11 11 52 54 -2 44
12 Wolves 34 12 7 15 46 54 -8 43
13 Fulham 34 12 6 16 50 54 -4 42
14 Crystal Palace 34 10 9 15 44 56 -12 39
15 Brentford 34 9 8 17 52 59 -7 35
16 Everton 34 11 8 15 36 48 -12 33
17 Nott. Forest 34 7 9 18 42 60 -18 26
18 Luton 34 6 7 21 47 75 -28 25
19 Burnley 34 5 8 21 37 69 -32 23
20 Sheffield Utd 34 3 7 24 33 92 -59 16
Athugasemdir
banner