Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 14. janúar 2023 15:28
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Reykjavíkurmót kvenna: Fjölnir lagði KR
Oddný Sara Helgadóttir í leik með Fram
Oddný Sara Helgadóttir í leik með Fram
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

KR 0-3 Fjölnir
Mörk Fjölnis: Ólöf Kristjana Þorvaldsdóttir, Oddný Sara Helgadóttir og ANna María Bergþórsdóttir.


KR og Fjölnir hófu leik í B-riðli Reykjavíkurmóts kvenna í gær en liðin mættust í Egilshöll.

Fjölnir var marki yfir í hálfleik en það var Ólöf Kristjana Þorvaldsdóttir sem skoraði markið.

Staðan var orðin 2-0 eftir klukkutíma leik en það var Oddný Sara Helgadóttir sem skoraði markið.

Anna María Bergþórsdóttir negldi síðasta naglann í kistu KR með marki undir lok leiksins. 3-0 lokatölur.


Athugasemdir
banner
banner