Velja 0 - 0 HB Koge
Björn Daníel Sverrisson var í byrjunarliði Velja sem fékk HB Koge í heimsókn í dönsku 1. deildinni í dag.
Björn Daníel er í láni hjá Velja frá AGF.
Björn fékk að byrja í dag, en hann var ekki mjög lengi inn á vellinum. Hann var tekinn af velli í hálfleik.
Leikurinn endaði með markalausu jafntefli, en Velje situr á toppi B-deildarinnar í Danmörku með 35 stig úr 17 leikjum.
Athugasemdir