Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 14. nóvember 2021 09:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Gerrard á eftir fyrrum leikmanni Liverpool
Rock on!
Rock on!
Mynd: Getty Images
Steven Gerrard nýráðinn stjóri Aston Villa er sagður hafa áhuga á að fá fyrrum leikmann Liverpool til liðs við sig í janúar.

Ryan Kent leikur með Rangers en Gerrard var stjóri þar áður en hann skipti yfir til Aston Villa á dögunum.

Gerrard fékk Kent til Rangers árið 2019 á 7.5 milljónir punda frá Liverpool. Kent náði ekki að brjóta sér leið í lið Liverpool en hann lék aðeins einn bikarleik með félaginu.

Hann hefur hinsvegar verið lykilmaður í liði Rangers. Fréttir herma að Liverpool fái 20% af söluverði Kent.
Athugasemdir
banner
banner
banner