Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 14. nóvember 2021 17:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Mbappe sá tólfti í sögunni sem fær tíu hjá L'Equipe
Kylian Mbappe.
Kylian Mbappe.
Mynd: EPA
Kylian Mbappe varð í gær tólfti fótboltamaðurinn í sögunni til að fá tíu í einkunn hjá franska íþróttablaðinu L'Equipe.

Mbappe skoraði þrennu í fyrri hálfleik og bætti fjórða markinu í þeim seinni þegar Frakkland vann 8-0 sigur á Kasakstan í undankeppni HM. Frakkar tryggðu sér sæti á HM með sigrinum.

Mbappe átti einnig eina stoðsendingu í leiknum og það var vart annað hægt en að gefa honum tíu.

L'Equipe gefur ekki leikmönnum tíu í einkunn á hverjum degi -alls ekki. Mbappe er sá tólfti í sögunni - eins og segir hér að ofan - sem fær þessa einkunn frá franska íþróttablaðinu.

Tveir af liðsfélögum hans Paris Saint-Germain, Neymar og Lionel Messi, eru báðir í 10/10 klúbbnum.

Þeir sem hafa fengið tíu í einkunn hjá L'Equipe:
1. Franck Sauzee (1988)
2. Bruno Martini (1988)
3. Oleg Salenko (1994)
4. Lars Windfeld (1997)
5. Lionel Messi (2010)
6. Lionel Messi (2012)
7. Robert Lewandowski (2013)
8. Carlos Eduardo (2014)
9. Neymar (2018)
10. Dusan Tadic (2019)
11. Lucas Moura (2019)
12. Serge Gnabry (2019)
13. Kylian Mbappe (2021)
Athugasemdir
banner
banner