Darron Gibson hefur verið án félags frá því í lok mars þegar leikmaðurinn og Sunderland komust að samkomulagi um að Gibson myndi yfirgefa félagið.
Ástæðan fyrir því að Gibson var látinn fara frá Sunderland í vetur var sú að hann gerðist sekur um ölvunarakstur
Gibson gæti samið við félag aftur á næstunni því hann hefur æft með Wigan síðustu vikur og lék í gær æfingaleik með liðinu.
Hinn 30 ára gamli Gibson hefur meðal annars leikið með Manchester United og Everton á ferli sínum.
Athugasemdir