Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 15. ágúst 2018 06:00
Ingólfur Páll Ingólfsson
Lee Cattermole óvænt orðaður við Bordeaux
Cattermole er ekki beint eftirsóttasti bitinn á leikmannamarkaðinum í sumar.
Cattermole er ekki beint eftirsóttasti bitinn á leikmannamarkaðinum í sumar.
Mynd: Getty Images
Það virðist allt stefna í að ein af óvæntari félagsskiptum sumarsins verði af furðulegri gerðinni en Lee Cattermoleler orðaður við Bordeaux.

Lee Cattermole spilar með Sunderland og hefur verið þar frá árinu 2009 en er nú óvænt orðaður við Bordeaux sem spilar í frönsku úrvalsdeildinni.

Bordeaux er nú í viðræðum við Sunderland um að fá miðjumanninn á láni út tímabilið. Félagsskiptaglugginn í Frakklandi er opinn til 31. ágúst svo að Cattermole gæti farið endanlega til Frakklands en það er þó talið líklegra að Bordeaux vilji aðeins fá leikmanninn tímabundið.

Cattermole fékk að heyra það á Twitter frá stuðningsmönnum Sunderland eftir jafntefli liðsins gegn Luton Town um helgina þar sem hann þótti spila einstaklega illa. Það er því spurning hvort að leikmaðurinn eiga eitthvað erindi í efstu deild Frakklands.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner