Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 16. febrúar 2019 11:00
Ívan Guðjón Baldursson
Pep: Þeir eru stærri og sterkari en við
Mynd: Getty Images
Pep Guardiola hefur varað leikmenn sína við því að búast við sigri gegn D-deildarliði Newport County í bikarnum í dag.

Liðin mætast í 16-liða úrslitum eftir að Newport er búið að slá út Wrexham, Leicester og Middlesbrough. Pep hefur hótað leikmönnum sínum að þeir missi af Meistaradeildarleiknum gegn Schalke ef þeir gera ekki sitt besta í dag.

„Ef þeir eru með næsta leik gegn Schalke í huganum núna þá mun ég skilja þá eftir heima, þeir fá ekki að fara með til Þýskalands. Þeir verða að taka þessum leik alvarlega og spila leikinn eins og hann á skilið að vera spilaður," sagði Pep.

„Þetta verður erfitt því þeir eru stærri og sterkari en við, á sumum sviðum eru þeir betri en við.

„Þetta er ekki í fyrsta sinn sem þeir spila bikarleik gegn sterkara liði á heimavelli og þeir vita að þeir geta gert okkur erfitt fyrir. Ef við værum á heimavelli þá væri sagan önnur, en við erum úti og þurfum að mæta einbeittir í þennan leik."

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner