Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 16. febrúar 2019 21:10
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Riyad Mahrez ánægður: Við stjórnuðum leiknum
Riyad Mahrez.
Riyad Mahrez.
Mynd: Getty Images
Manchester City er komið áfram í 8-liða úrslit ensku bikarkeppninnar eftir 1-4 sigur á D-deildarliði Newport County í kvöld.

Riyad Mahrez fékk tækifæri í liði Manchester City í kvöld og hann skoraði fjórða mark liðsins í uppbótartíma.

„Þeir sköpuðu ekki mörg færi, við stjórnuðum leiknum og erum mjög ánægðir með það að vera komnir áfram."

„Úrslitin eru það sem skipta mestu máli í svona leikjum, við erum atvinnumenn og þurfum að vera viðbúnir öllu, en allir eru mjög ánægðir með að vera komnir áfram."

„Nú þurfum við að gleyma bikarkeppninni og fara að einbeita okkur að Meistaradeildinni, það er mikilvægt að taka bara einn leik í einu," sagði Mahrez að lokum en Manchester City mætir Schalke á miðvikudaginn.
Athugasemdir
banner
banner