Aleksandar Mitrovic, framherji Fulham, segist hafa gæðin sem þarf til að spila í ensku úrvalsdeildinni.
Mitrovic skoraði 12 mörk í 17 leikjum í Championship deildinni síðari hlutann á síðasta tímabili þegar hann var í láni hjá Fulham frá Newcastle.
Mitrovic skoraði 12 mörk í 17 leikjum í Championship deildinni síðari hlutann á síðasta tímabili þegar hann var í láni hjá Fulham frá Newcastle.
Fulham ákvað í kjölfarið að kaupa serbneska landsliðsmanninn í sínar raðir í sumar.
„Ég vil sýna öllum að ég geti spilað í bestu deild í heimi og skorað mörk. Þú verður háður mörkum. Þegar þú skorar þá viltu skora meira og meira," sagði Mitrovic.
„Ég veit að þetta verður erfitt. Þetta er betri deild með meiri gæðum en ég veit að ég hef hæfileikana og gæðin sem til þarf."
Athugasemdir