Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
   fim 16. ágúst 2018 13:00
Magnús Már Einarsson
Óli Guðbjörns: Vonandi góð byrjun á menningarhelginni
Úrslitaleikur Mjólkurbikarsins á morgun
Ólafur Þór Guðbjörnsson.
Ólafur Þór Guðbjörnsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Stjarnan og Breiðablik mætast í úrslitum Mjólkurbikars kvenna á Laugardalsvelli klukkan 19:15 annað kvöld. Þetta er fjórði bikarúrslitaleikur Stjörnunnar á síðustu fimm árum.

„Þetta er alltaf jafn skemmtilegt. Það er gaman að taka þátt í þessum viðburði," sagði Ólafur Þór Guðbjörnsson, þjálfari Stjörnunnar, við Fótbolta.net.

Smelltu hér til að kaupa miða á leikinn

Breiðablik vann báða leiki liðanna í Pepsi-deildinni í sumar.

„Þessi leikur snýst ekki um að hefna sín á Breiðabliki, þetta snýst um að ná í þennan bikar. Við ætlum okkur að ná í þennan bikar. Þetta verður hörkuskemmtilegur leikur. Breiðablik er með flott lið. Við þurfum að hugsa um okkur og þetta snýst um að mæta og ná í dolluna," sagði Óli en hver er lykillinn að því að vinna Breiðablik?

„Við þurfum að vera skynsöm og loka ákveðnum svæðum á vellinum og nýta færin okkar. Við höfum fengið færi í leikjunum okkar og nýtingin hefur farið skánandi eftir því sem hefur liðið á sumarið. Þessir leikir við Breiðablik ráðast oft á einu marki og fókusinn og skynsemin ræður þessu."

Ólafur vonast eftir góðri mætingu annað kvöld og að áhorfendamet falli jafnvel á bikarúrslitunum. „Ég vona að við verðum nálægt áhorfendametinu eða sláum það. Það gerir þetta skemmtilegra. Ég vona að þetta verði frábær dagur og góð byrjun á Menningarhelginni," sagði Ólafur að lokum.

Horfðu á viðtalið í heild sinni hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner