Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 16. nóvember 2021 11:10
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Bale tekur ekki þátt í leiknum í kvöld
Bale byrjar ekki í dag.
Bale byrjar ekki í dag.
Mynd: EPA
Gareth Bale, helsta stjarna landsliðs Wales, mun ekki taka þátt í kvöld þegar liðið mætir Belgíu í lokaleik sínum í riðlinum í undankeppni HM 2022.

Bale hefur verið frá vegna meiðsla síðustu tvo mánuði, en hann sneri aftur er hann spilaði sinn 100. leik fyrir Wales á dögunum. Hann byrjaði í 5-1 sigri gegn Hvíta-Rússlandi en var tekinn af velli í hálfleik.

Hann æfði einn í gær og nú hefur verið staðfest að hann verði ekki í hóp.

Lið Wales er öruggt í umspil fyrir HM, en með sigri í dag gæti liðið tryggt sér öðru sæti í riðli sínum og mögulega tryggt sér heimaleik í undanúrslitunum í umspilinu.
Athugasemdir
banner
banner