Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 16. nóvember 2021 15:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Phil Neville lætur marga leikmenn fara og færir son sinn í aðalliðið
Harvey Neville í treyju Valencia árið 2017.
Harvey Neville í treyju Valencia árið 2017.
Mynd: Valencia
Inter Miami komst ekki í úrslitakeppni MLS á fyrsta tímabili Phil Neville sem stjóra liðsins. Félagið er í eigu David Beckham og voru hann og Phil liðsfélagar hjá Manchester United á sínum tíma.

Inter endaði í ellefta sæti af fjórtán liðum í austurdeildinni. The Sun greinir frá því að Neville sé búinn að losa sig við tíu leikmenn úr hópnum.

Ekki er búið að nefna hvaða leikmenn þetta eru en fjórir þekktir leikmenn leika með liðinu. Það eru þeir Gonzalo Higuain, Blaise Matuidi, Ryan Shawcross og Kieran Gibbs. Shawcross og Higuain eiga ár eftir af samningi sínum.

Harvey Neville, sonur Phil Neville, verður með Inter á næsta tímabili eftir að hafa staðið sig vel með systurfélagi Inter, Fort Lauderdeale, á síðasta tímabili.

Harvey er nítján ára hægri bakvörður. „Hann er hluti af hópi átta til tíu leikmanna sem við viljum að spili með MLS-liðinu," sagði Phil við Sun.
Athugasemdir
banner
banner
banner