Síðasta leik kvöldsins var að ljúka í spænska boltanum þar sem Barcelona valtaði yfir Levante.
Lionel Messi átti stórleik. Hann skoraði þrjú og lagði hin tvö upp í fimm marka sigri.
Messi er markahæsti og stoðsendingahæsti leikmaður fimm bestu deilda Evrópu eftir leikinn.
Barcelona er með þriggja stiga forystu á toppi deildarinnar eftir sigurinn og er Levante tveimur stigum frá Evrópusæti.
Huesca gerði þá jafntefli við Villarreal í fallbaráttunni. Huesca er sem fyrr á botninum, sjö stigum frá Villarreal.
Levante 0 - 5 Barcelona
0-1 Luis Suarez ('35)
0-2 Lionel Messi ('43)
0-3 Lionel Messi ('47)
0-4 Lionel Messi ('60)
0-5 Gerard Pique ('88)
Rautt spjald: Erick Cabaco, Levante ('77)
Huesca 2 - 2 Villarreal
1-0 Cucho ('44, víti)
1-1 Carlos Bacca ('63, víti)
1-2 Gerard Moreno ('81)
2-2 Samuele Longo ('94)
Athugasemdir