Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 17. febrúar 2019 10:36
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Dagný byrjuð að spila aftur
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Dagný Brynjarsdóttir var í byrjunarliði Selfoss gegn Breiðabliki í Lengjubikar kvenna í gær.

Dagný spilaði fyrri hálfleikinn með Selfyssingum í 6-0 tapi.

Þetta er fyrsti skráði leikurinn hennar frá því í október 2017. Hún eignaðist barn síðastliðið sumar.

Dagný var á dögunum valin aftur í íslenska landsliðið og í gær mætti hún á fótboltavöllinn með Selfossi. Hún samdi við Selfoss síðasta sumar og gat spilað með liðinu í gær þrátt fyrir að hún hafi nýverið samið aftur við Portland Thorns í Bandaríkjunum.

Það er mikið gleðiefni að fá Dagnýju aftur á fótboltavöllinn. Hún er algjör lykilmaður í íslenska landsliðinu.

Sjá einnig:
Jón Þór: Dagný mun spila úti á Algarve
Athugasemdir
banner
banner
banner