Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 17. júní 2022 16:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Potter: Allir óska Bissouma góðs gengis
Mynd: EPA

Yves Bissouma gekk til liðs við Tottenham í dag frá Brighton. Hann gekk til liðs við Brighton árið 2018 og vakið verðskuldaða athygli fyrir frammistöðu sína.


Graham Potter stjóri Brighton hefur náð frábærum árangri með liðinu en Brighton hafnaði í 9. sæti á síðustu leiktíð, besti árangur liðsins í úrvalsdeildinni.

Potter tjáði sig um brotthvarf Bissouma.

„Yves hefur sýnt ótvíræða hæfileika og hefur verið mikilvægur leikmaður hjá okkur. Nú fær hann nýja áskorun hjá Tottenham, meðal annars tækifæri til að spila í Meistaradeildinni. Allir í félaginu óska honum góðs gengis," sagði Potter.


Athugasemdir
banner
banner
banner