Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 17. júlí 2021 10:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Guðlaugur Victor byrjaði í sigri á Vitesse
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Schalke lék æfingarleik gegn hollenska liðinu VItesse í gær. Leiknum lauk með 3-2 sigri Schalke.

Guðlaugur Victor Pálsson var í byrjunarliði Schalke en hann lék 82. mínútur.

Það var markalaust í hálfleik en Schalke skoraði fyrstu tvö mörk leiksins. Vitesse minnkaði muninn áður en þriðja mark Schalke kom en Vitesse klóraði í bakkann undir lokin.

Schalke féll úr þýsku bundesligunni á síðustu leiktíð en fyrsti leikur liðsins í næst efstu deild á komandi tímabili er á föstudaginn gegn HSV á heimavelli.


Athugasemdir
banner
banner
banner